|
Sveitarstjórn Öxarfjarðarhrepps
Fundargerð 214. fundar.
Árið 2006 föstudaginn 9. júní maí kom sveitarstjórn saman til fundar að Bakkagötu 10 kl. 13:00. Mættir voru: Rúnar Þórarinsson, Jón H. Guðmundsson, Kristján Þ. Halldórsson, Helgi V. Björnsson og Jóhannes Árnason, sveitarstjóri Elvar Árni Lund og Skúli Þ. Jónsson sem ritar fundargerð.
Í forsæti var Rúnar Þórarinsson.
Dagskrá
1. mál. Fundargerð 213. fundar frá 24. maí 2006. 2. mál. Byggðakvóti í Öxarfjarðarhreppi. 3. mál. Kaup Öxarfjarðarhrepps á hlutafé vegna hótelbyggingar í Ásbyrgi. 4. mál. Erindi frá stjórn Randarinnar vegna kaupa á hlutafé sveitarfélagsins í fyrirtækinu. 5. mál. Skýrsla fráfarandi sveitarstjóra um stöðu mála í Öxarfjarðarhreppi. 6. mál. Ársreikningur fyrir 2006 – síðari umræða.
Gengið var til dagskrár
1. mál. Fundargerð 213. fundar frá 24. maí 2006. Ekki komu fram athugasemdir við fundargerðina.
2. mál. Byggðakvóti í Öxarfjarðarhreppi. Sveitarstjóri kynnti stöðu mála varðandi byggðakvótann.
3. mál. Kaup Öxarfjarðarhrepps á hlutafé vegna hótelbyggingar í Ásbyrgi. Kristján Þ. Halldórsson sagði frá undirbúningsvinnu í þessu máli. Sveitarstjórn samþykkir að Öxarfjarðarhreppur kaupi hlutafé að upphæð kr 100.00- í undirbúningsfélagi vegna fyrirhugaðrar hótelbyggingar við Ásbyrgi. Erindinu vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
4. mál. Erindi frá stjórn Randarinnar vegna kaupa á hlutafé sveitarfélagsins í fyrirtækinu. Skúli Þór vék af fundi undir þessum lið. Sveitarstjórn samþykkir að bjóðast til að selja hlut sveitarfélagsins á bókfærðu verði, eða kr. 5 per hlut alls kr. 500.000-.
5. mál. Skýrsla fráfarandi sveitarstjóra um stöðu mála í Öxarfjarðarhreppi. Elvar Árni flutti og lagði fram skýrslu sína um stöðu mála í Öxarfjarðahreppi nú þegar ný sveitarstjórn tekur við í sameinuðu sveitarfélagi.
6. mál. Ársreikningur fyrir 2005 – síðari umræða. Sveitarstjórn samþykkir ársreikning fyrir árið 2005 með fyrirvara um samþykki skoðunarmanna reikninga.
**********
1.mál. Fundargerð 7. fundar AÞ frá 24. maí sem var lögð fram.
2. mál. Biðlaun sveitarstjóra. Sveitarstjórn samþykkir að greiða sveitarstjóra þriggja mánaða biðlaun auk lögbundinna orlofsréttinda. Greiðslan skal öll fara fram við starfslok.
3. mál. Tillaga að greiðslum til sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna í sameinuðu sveitarfélagi í Þingeyjarsýslum. Kristján Þ. Halldórsson kynnti tillöguna sem er lögð fram af verkefnisstjórn vegna sameiningarnefndar. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna.
Fundi frestað kl. 14:50
Þar sem þetta er lokafundur sveitarstjórnar í Öxarfjarðarhreppi var fundi framhaldið í íþróttahúsinu kl. 15:00 og var öllum hreppsbúum boðið til fundarins og þiggja kaffi og meðlæti.
Oddviti sveitarfélagsins Rúnar Þórarinsson flutti ávarp og rakti sögu sveitarfélagsins og þakkaði starfsfólki sem starfað hefur hjá hreppnum frá stofnun hans og nefndi þá sveitarstjóra sem verið hafa frá stofnun sveitarfélagsins er þeir eru: Ingunn Svarvarsdóttir, Steindór Sigurðsson og Elvar Árni Lund. Rúnar kallaði síðan upp að púlti Elvar Árna, Gunnþóru Jónsdóttur og Skúla Þ. Jónsson og afhenti þeim blómaskreytingu fyrir þeirra störf. Elvar Árni flutti ávarp og þakkaði fyrir samstarfið og einnig þökkuðu fyrir sig Gunnþóra, Skúli, Halldór Sigurðsson og Kristján Þ. Halldórsson. Að lokum þakkaði oddviti sveitarstjórn samstarfið og bauð fundarmönnum upp á veitingar og bað alla sem mættir voru að skrifa undir fundargerðina.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.
Guðrún S. Kristjánsdóttir, Skúli Þ. Jónsson, Olga Gísladóttir, Jón Halldór Guðmundsson, Jón Grímsson, Jóhannes Árnason, Kristján Þ. Halldórsson, Elvar Árni Lund, ArnaÝrr Sigurðardóttir, Erla S. Kristjánsdóttir, Stefanía V. Gísladóttir, Helgi Viðar Björnsson, Kristín H. Friðriksdóttir, Jón Skúli Skúlason, Hólmfríður Halldórsdóttir, Rúnar Þórarinsson, Björn Jónsson, Pétur Einarsson, Friðrik Jónsson, Hrönn Guðmundsdóttir, Anna G. Ólafsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Ragnhildur Þorgeirsdóttir, Guðný María Sigurðardóttir, Helga Helgadóttir, Sylvía Dröfn Jónsd. Thelma Rut.
|