|
Sveitarstjórn Öxarfjarðarhrepps
Fundargerð 212. fundar.
Árið 2006 fimmtudaginn 27. apríl kom sveitarstjórn saman til fundar að Bakkagötu 10 kl. 10:00. Mættir voru: Rúnar Þórarinsson, Kristján Þ. Halldórsson, Jón Halldór Guðmundsson, Helgi Viðar Björnsson og varamaður Jón Grímsson, sveitarstjóri Elvar Árni Lund. Jón Grímsson ritar fundargerð.
Í forsæti var Rúnar Þórarinsson.
Áður en formlegur fundurhófst mætti Bogi Ingimundarson og gerði hann grein fyrir sjónarmiði landeigenda Brekku vegna máls nr. 8 á dagskrá fundarins.
Dagskrá
1. mál. Fundargerð 211. fundar frá 4. apríl 2006. 2. mál. Fundargerð skólanefndar frá 21. apríl. 3. mál. Fundargerð 90. fundar Heilbrigðisnefndar Þingeyinga frá 10. apríl. 4. mál. Fundargerð Eyþings með þingmönnum kjördæmisins 16. janúar – leiðrétt fundargerð. 5. mál. Fundargerð 733. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24. mars. 6. mál. Bréf frá Þórarni Þórarinssyni í Vogum vegna Dettifossvegar vestan Jökulsár – athugasemdir við umhverfismat. 7. mál. Erindi frá 3. flokki drengja í fótbolta á Norðaustuhorninu – umsókn um styrk. 8. mál. Bréf frá Sigurði Sigurjónssyni hrl. vegna úrskurðs umhverfisráðuneytisins um umhverfismat vegar um Hólaheiði og vegna vegagerðar í landi Brekku í Öxarfjarðarhreppi. 9. mál. Umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi – Norðausturvegur um Hólaheiði. 10. mál. 3. ára fjárhagsáætlun Öxarfjarðarhrepps – síðari umræða.
Gengið var til dagskrár
1. mál. Fundargerð 211. fundar frá 4. apríl 2006. Lagt fram.
2. mál. Fundargerð skólanefndar frá 21. apríl. Lagt fram og rætt, engar athugasemdir gerðar og samþykkt.
3. mál. Fundargerð 90. fundar Heilbrigðisnefndar Þingeyinga frá 10. apríl. Lögð fram.
4. mál. Fundargerð Eyþings með þingmönnum kjördæmisins 16. janúar – leiðrétt fundargerð. Lagt fram.
5. mál. Fundargerð 733. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24. mars. Lagt fram.
6. mál. Bréf frá Þórarni Þórarinssyni í Vogum vegna Dettifossvegar vestan Jökulsár – athugasemdir við umhverfismat. Lagt fram. Sveitarstjórn ítrekar fyrri afstöðu sína að hugsamunum íbúanna sé best sinnt með uppbyggingu heilsársvegar sem tengir þjóðveg 85 við þjóðveg 1 sem allra fyrst.
7. mál. Erindi frá 3. flokki drengja í fótbolta á Norðaustuhorninu – umsókn um styrk. Sveitarstjórn samþykkir að veita kr. 50.000- og það yrði dregið af áður samþykktum styrk til knattspyrnudeildar Snartar.
8. mál. Bréf frá Sigurði Sigurjónssyni hrl. vegna úrskurðs umhverfisráðuneytisins um umhverfismat vegar um Hólaheiði og vegna vegagerðar í landi Brekku í Öxarfjarðarhreppi. Lagt fram. Einnig voru lögð fram 2 bréf, annars vegar bréf frá Sigurði Sigursjónssyni hrl. dagsett 25. apríl 2006 og hinsvegar bréf frá Jóni Höskuldssyni hrl. dagsett 25. apríl 2006.
9. mál. Umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi – Norðausturvegur um Hólaheiði. Lagt fram. Sveitarstjórn samþykkir beiðni Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi sem fram kemur í bréfi dags. 22. mars 2006, með skilyrðum um girðingu beggja vegna vegar og aðgengi búpenings að vatni úr Álftatjörn og útskotum sem nánar verður tilgreint í svarbréfi til framkvæmdaraðila. Helgi Viðar Björnsson sat hjá við afgreiðslu þessa máls. Sveitarstjóra falið að vinna að útfærslu þessara skilyrða í samvinnu við landeigendur og Vegagerð.
10. mál. 3. ára fjárhagsáætlun Öxarfjarðarhrepps – síðari umræða. Lögð fram. Rekstrarniðurstaða auk A og B hluta er fyrir árið 2007 neikvæð um kr. 3.023.000- fyrir árið 2008 neikvæð um kr. 5.923.000 og fyrir árið 2009 neikvætt um kr. 5.823.000. Ráðgert er að fjármagna þetta tap með eigin fé og lántökum.
**********
Leitað var afbrigða til að taka fyrir eftirfarandi mál:
1. Erindi frá Umhverfisstofnun varðandi förgun á smituðum úrgangi (fuglaflensa) dags. 12. apríl 2006. Erindinu hafnað
2. Aðalfundur Randarinnar ehf. föstudaginn 12. maí 2006. Ákveðið að Rúnar Þórarinsson sitji þann fund.
Fleira ekki tekið fyrir.
Helgi ViðarBjörnsson Jón Grímsson Jón H. Guðmundsson Elvar Árni Lund Kristján Þ. Halldórsson Rúnar Þórarinsson
|