|
Sveitarstjórn Öxarfjarðarhrepps 214. fundur (lokafundur) verður haldinn í sveitarstjórn Öxarfjarðarhrepps föstudaginn 9. júní 2006 í íþróttahúsinu á Kópaskeri kl. 15:00.
Dagskrá
1. mál. Fundargerð 213. fundar frá 24. maí 2006. 2. mál. Byggðakvóti í Öxarfjarðarhreppi. 3. mál. Þátttaka Öxarfjarðarhrepps í hótelbyggingu í Ásbyrgi. 4. mál. Erindi frá stjórn Randarinnar vegna kaupa á hlutafé sveitarfélagsins í fyrirtækinu. 5. mál. Skýrsla fráfarandi sveitarstjóra um stöðu mála í Öxarfjarðarhreppi. 6. mál. Ársreikningur fyrir 2006 – síðari umræða.
Þar sem 214. fundur sveitarstjórnar verður sá síðasti í sveitarfélaginu Öxarfjarðarhreppi verður hann haldinn í íþróttahúsinu á Kópaskeri og eru allir starfsmenn hreppsins, nefndarmenn og allir aðrir íbúar hvattir til að mæta á þennan sögulega fund. Fundargerðarbók verður lokað með viðhöfn og eftir fundinn býður sveitarstjórn íbúum upp á kaffi og meðlæti.
_________________________ Elvar Árni Lund Sveitarstjóri
|