|
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Kjörskrár
Sveitarstjórnir annast um að kjörskrár séu gerðar og skal samningu þeirra lokið í tæka tíð fyrir framlagningu, þ.e. 17. maí 2006.
Viðmiðunardagur kjörskrár nú er 6. maí 2006.
Kjörskráin skal liggja frammi í tíu daga fyrir kjördag, þ.e. frá og með 17. maí til og með 27. maí 2006, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 5/1998.
Kjörskráin verður lögð fram á skrifstofu Öxarfjarðarhrepps þann 17. maí.
Hver sem er getur gert athugasemdir til sveitarstjórnar um að nafn eða nöfn einhverra kjósenda vanti á kjörskrá eða þeim sé þar ofaukið. Heimilt er að gera athugasemdir til sveitarstjórnar fram á kjördag. Sveitarstjórn skal þegar tilkynna hlutaðeigandi um leiðréttingar á kjörskrá svo og sveitarstjórn er mál getur varðað. Jafnframt skal tilkynna hlutaðeigandi kjörstjórn um leiðréttingu á kjörskrá, sbr. 11. gr. laga nr. 5/1998.
__________________ Sveitarstjóri
|