Öxarfjörður
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Myndir
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Saga
Umhverfi
Áhugavert
Atvinnumál
Þjónusta
Staðardagskrá 21
Stjórnsýsla
Skrifstofur
Starfsfólk
Fundargerðir
Nefndir
Sveitarstjórn

Fréttir
Hvað á barnið að heita? 21. febrúar 2006
Hvað á barnið að heita?

Í kjölfar ákvörðunar um sameiningu sveitarfélaganna Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps hefur verið skipuð verkefnisstjórn sem mun skipuleggja undirbúning sameiningarinnar. Eitt af þeim verkefnum sem liggur fyrir er að ákveða hvernig nafn hins nýja sveitarfélags skuli valið. Verkefnisstjórnin hefur nú ákveðið eftirfarandi ferli við val á nafni:
• Verkefnisstjórn vegna sameiningar mun standa fyrir samkeppni meðal íbúa um nafn á sveitarfélagið.
• Verkefnisstjórnin mun velja allt að 5 nöfn úr tillögunum og senda Örnefnanefnd til umsagnar.
• Samhliða sveitarstjórnarkosningum 2006 verður gerð skoðanakönnun meðal kjósenda um nafn hins sameinaða sveitarfélags. Til grundvallar verða lögð þau nöfn sem hlotið hafa samþykki Örnefnanefndar.
• Nafn hins sameinaða sveitarfélags verður ákveðið af nýrri sveitarstjórn og auglýst sérstaklega.
Hér með óskar verkefnisstjórn um sameiningu eftir tillögum að nafni hins sameinaða sveitarfélags frá íbúum svæðisins. Samkvæmt lögum skal nafnið samrýmast íslenskri málfræði og málvenju. Einnig skal tekið fram að ekki er verið að horfa til núverandi stjórnsýsluheita sveitarfélaganna eða tilvísunar í þau.
Tillögum skal komið á framfæri á skrifstofu einhvers hinna fjögurra sveitarfélaga. Til að gæta hlutleysis hefur verkefnisstjórnin ákveðið að fara fram á að tillögur njóti nafnleyndar þar til nafn hefur verið valið. Það skal gert á þann hátt að tillaga að nafni, ásamt nafni og heimilisfangi höfundar, skal sett í umslag og því lokað. Utan á umslagið skal á ný skrifa tillöguna að nafni sveitarfélagsins. Umslaginu skal komið á skrifstofu eins af sveitarfélögunum og það merkt ”Nafn sameinaðs sveitarfélags”. Skilafrestur er til og með 15. mars nk..
Verkefnisstjórn leggur til að veitt verði verðlaun fyrir það nafn er að lokum verður valið sem nafn hins nýja sveitarfélags. Verði margir með tillögur að sama nafni verður nafn verðlaunahafans dregið úr hópnum.

Verkefnisstjórn vegna sameiningar
Til baka
© 2000 - 2002 Öxarfjarðarhreppur, Bakkagötu 10, 670 Kópasker
Sími: 465-2188, Fax: 465-2380 oxarfjordur@simnet.is