|
Sameining samþykkt
Sameining sveitarfélaganna Raufarhafnarhrepps, Öxarfjarðarhrepps, Kelduneshrepps og Húsavíkurbæjar var samþykkt í kosningum laugardaginn 21 janúar.
Sameiningin var samþykkt í öllum sveitarfélögunum sem hér segir:
Raufarhafnarhreppur: Já: 53, Nei: 37, Auðir og ógildir 2.
Öxarfjarðarhreppur: Já: 96, Nei: 77, Auðir og ógildir 4.
Keldurneshreppur: Já: 33, Nei: 28, Auðir og ógildir 2.
Húsavíkurbær: Já: 378, Nei: 100, Auðir og ógildir 9.
|