Öxarfjörður
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Myndir
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Saga
Umhverfi
Áhugavert
Atvinnumál
Þjónusta
Staðardagskrá 21
Stjórnsýsla
Skrifstofur
Starfsfólk
Fundargerðir
Nefndir
Sveitarstjórn

Fréttir
Til leigu - Ferðaþjónustan að Lundi í Öxarfirði 7. desember 2005
Til leigu
Ferðaþjónustuaðstaða að Lundi í Öxarfirði

Öxarfjarðarhreppur hefur um árabil leigt út aðstöðu fyrir ferðaþjónustu að Lundi í Öxarfirði í N-Þingeyjarsýslu. Í Lundi er annar tveggja grunnskóla Öxarfjarðarskóla með mötuneyti og heimavist sem leigður hefur verið út til ferðaþjónustu frá vori og fram á haust. Í Lundi er sundlaug og íþróttahús.

Lundur er í birkiskógi og við þjóðbraut (þjóðvegur 85). Í næsta nágrenni eru merkir áningastaðir s.s. Ásbyrgi (6 km), Hljóðaklettar, Dettifoss, Grettisbæli, Rauðinúpur og Hraunhafnartangi. Vaxandi sumarhúsabyggð er á svæðinu. Umferð til og frá Kópaskeri, Raufarhöfn og Þórshöfn liggur um staðinn. Nýr vegur með bundnu slitlagi um Tjörnes gefur vonir um aukinn ferðamannafjölda inn á svæðið. Lögð hefur verið áhersla á að kynna sérstöðu þessa svæðis fyrir ferðamenn. Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja leggja ferðaþjónustu fyrir sig og leggja metnað í starfið.

Tilboð í leigu og áform um rekstur óskast send á skrifstofu Öxarfjarðarhrepps að Bakkagötu 10, 670 Kópaskeri eða á oxarfjordur@simnet.is
Einnig fást nánari upplýsingar hjá sveitarstjóra, Elvari Árna Lund í síma 4652188 og 8602188.
Til baka
© 2000 - 2002 Öxarfjarðarhreppur, Bakkagötu 10, 670 Kópasker
Sími: 465-2188, Fax: 465-2380 oxarfjordur@simnet.is