Öxarfjörður
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Myndir
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Saga
Umhverfi
Áhugavert
Atvinnumál
Þjónusta
Staðardagskrá 21
Stjórnsýsla
Skrifstofur
Starfsfólk
Fundargerðir
Nefndir
Sveitarstjórn

Fréttir
Lausaganga búfjár 28. nóvember 2005
“Sveitarstjórn skorar á alla landeigendur í Öxarfirði og Núpasveit að halda við girðingum sínum sem liggja að þjóðvegi 85 og gæta þess að búpeningur gangi ekki laus með veginum.

Sveitarstjórn mælist til þess að búfjáreigendur virði það sjónarmið vegfarenda að halda þeim vegum sem girt er með fjárlausum. Á þetta við hvort sem um er að ræða girðingu beggja vegna eða öðru megin þjóðvegar.

Í þessu sambandi minnir sveitarstjórn á að skólabílar eru á ferðinni innan sveitarfélagsins snemma morguns og á daginn, þéttsetnir af nemendum og kennurum. Það er ólíðandi að þeim, sem og öðrum vegfarendum, skuli stafa hætta af sauðfé á vegum í svartasta skammdeginu, sérstaklega í ljósi þess að sveitarstjórn lítur almennt svo á að lausaganga búfjár með þjóðvegi 85 sé ekki æskileg þar sem girt er, þ.e.a.s. á þjóðvegi 85 frá Jökulsá á Fjöllum norður að Kópaskeri.

Nægi þessi tilmæli ekki má búast við að viðbrögð sveitarstjórnar verði á þann veg að samþykkt um lausagöngu búfjár verði hert til muna, en hér er vísað til gildandi laga um búfjárhald, nr. 103 frá 15. maí 2002 og reglugerð um vörslu búfjár nr. 59 frá 2000.

Sveitarstjórn minnir jafnframt á að algert bann við lausagöngu stórgripa gildir í sveitarfélaginu.”
Til baka
© 2000 - 2002 Öxarfjarðarhreppur, Bakkagötu 10, 670 Kópasker
Sími: 465-2188, Fax: 465-2380 oxarfjordur@simnet.is