Öxarfjörður
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Myndir
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Saga
Umhverfi
Áhugavert
Atvinnumál
Þjónusta
Staðardagskrá 21
Stjórnsýsla
Skrifstofur
Starfsfólk
Fundargerðir
Nefndir
Sveitarstjórn

Fréttir
Sameiningarkosningar 21. janúar 2006 28. nóvember 2005
Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna
Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Raufarhafnarhrepps
og Öxarfjarðarhrepps


Kópaskeri, 28. nóvember 2005


Til þeirra er málið varðar


Samstarfsnefnd um undirbúning kosninga um sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum.

Í kosningum um sameiningu sjö sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum er haldnar voru í október og nóvember sl. var meirihluti íbúa í fjórum sveitarfélaganna samþykkur sameiningu. Í framhaldi af því ákváðu sveitarstjórnir þessarra fjögurra sveitarfélaga að skipa samstarfsnefnd um undirbúning kosninga um sameiningu sveitarfélaganna fjögurra. Nefndin er skipuð eftirtöldum aðilum:

Erna Björnsdóttir frá Húsavíkurbæ
Tryggvi Jóhannsson frá Húsavíkurbæ
Aðalsteinn Örn Snæþórsson frá Kelduneshreppi
Katrín Eymundsdóttir frá Kelduneshreppi
Rúnar Þórarinsson frá Öxarfjarðarhreppi
Kristján Þ. Halldórsson frá Öxarfjarðarhreppi
Guðný Hrund Karlsdóttir frá Raufarhafnarhreppi
Heiðrún Þórólfsdóttir frá Raufarhafnarhreppi

Nefndin hefur þegar hafið störf og ákveðið hefur verið að kosið verði um sameininguna þann 21. janúar 2006. Formaður nefndarinnar er Kristján Þ. Halldórsson.



f.h. samstarfsmefndar,

Kristján Þ. Halldórsson, form.
Til baka
© 2000 - 2002 Öxarfjarðarhreppur, Bakkagötu 10, 670 Kópasker
Sími: 465-2188, Fax: 465-2380 oxarfjordur@simnet.is