|
Úthlutun byggðakvóta í Öxarfjarðarhreppi fiskveiðiárið 2005-2006.
Sveitarstjórn Öxarfjarðarhrepps auglýsir hér með eftir umsóknum um byggðakvóta í Öxarfjarðarhreppi fiskveiðiárið 2005/2006. Við úthlutun verður farið eftir neðangreindum reglum sem staðfestar hafa verið af sjávarútvegsráðuneytinu. Reglurnar eru samkvæmt því sem fram kemur í reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins frá 4. ágúst nr. 722/2005 um úthlutun byggðakvóta.
Með reglunun vill sveitarstjórn fyrst og síðast stuðla að fjölgun starfa í fiskvinnslu og sjávarútvegi í sveitarfélaginu.
Eftirfarandi reglur hafa verið samþykktar af sjávarútvegsráðuneytinu og fer sveitarstjórn eftir þeim við úthlutun kvótans:
1. gr. Veiðiheimildum, samkvæmt bréfi sjávarútvegsráðuneytisins frá 14. september 2005, skal úthlutað til einstakra aflamarksskipa/báta og krókaaflamarksbáta, sem leggja upp afla sinn til vinnslu á Kópaskeri. Útgerðir koma aðeins til greina við úthlutun leggi þær fram samning við starfandi fiskvinnslu með vinnsluleyfi á Kópaskeri ásamt umsókn um byggðakvóta.
2. gr. Öllum sem úthlutað er byggðakvóta er skylt að leggja til aflaheimildir að lágmarki tvöfalt á við úthlutaðan byggðakvóta og skoðast móttekin umsókn sem staðfesting viðkomandi á því að það verði gert.
3. gr. Úthlutaður byggðakvóti er ekki framseljanlegur en heimilt er að skipta á jöfnu á markaðsvirði á öðrum tegundum en þorski án þess að það teljist framsal á úthlutuðum aflaheimildum. Bátur skal fyrst landa eigin aflaheimildum áður en byggðakvóti er færður á viðkomandi bát.
4. gr. Sveitarstjórn skiptir kvótanum jafnt á milli umsækjenda en þó verður aldrei minna en 50% kvótans úthlutað til heimabáta, þessi liður kann þó að verða tekinn til endurskoðunar í ljósi fjölda umsókna. Umsóknarfrestur um byggðakvóta er til 5. desember og skulu umsóknir hafa borist fyrir kl. 16:00 á skrifstofu sveitarfélagsins þann dag.
5. gr. Með umsókn um veiðiheimildir skv. reglum þessum samþykkir viðkomandi þá skilmála sem reglurnar fela í sér. Útgerðir skulu að einu og öllu fara að þeim skilyrðum sem hér koma fram, þar á meðal skulu forráðamenn þeirra skrifa undir samkomulag við Öxarfjarðarhrepp um að þær afsali sér aflaheimildum fari þær eða geti ekki farið að þeim reglum sem um úthlutun byggðakvótans gilda. Þá fyrirgera útgerðir sem ekki fara að skilyrðum reglnanna rétti sínum til hugsanlegrar úthlutunar á næsta ári.
*********************************
Allar umsóknir skulu berast skriflega á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir kl. 16:00 mánudaginn 5. desember n.k., eins og fram kemur í 4. grein. Í umsókn skal tekið skýrt fram hversu mikið er fyrirhugað að veiða, á hvaða bát og hversu miklum aflaheimildum útgerðin hefur yfir að ráða. Fyrirhugað fyrirkomulag við veiðar skal kynnt í umsókn s.s. tegund veiðarfæra, tímabil veiða, fjöldi áhafnarmeðlima osv.frv. Önnur atriði sem umsækjendur telji að skipti máli fyrir umsóknina er sjálfsagt að taka einnig fram. Vakin er athygli á því að þeir aðilar sem fengu úthlutað byggðakvóta á síðasta fiskveiðiári og fylgdu ekki þágildandi reglum varðandi ráðstöfun byggðakvóta geta átt á hættu að verða útilokaðir frá úthlutun nú.
______________________ Sveitarstjóri
|