Öxarfjörður
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Myndir
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Saga
Umhverfi
Áhugavert
Atvinnumál
Þjónusta
Staðardagskrá 21
Stjórnsýsla
Skrifstofur
Starfsfólk
Fundargerðir
Nefndir
Sveitarstjórn

Fréttir
Sameining samþykkt í Öxarfjarðarhreppi 12. október 2005
Um helgina var kosið um sameiningu 7 sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum.

Íbúar í þremur af sjö sveitarfélögum í Norður og Suður-Þingeyjarsýslum, Húsavík, Öxarfjarðarhreppi og Raufarhafnarhreppi, samþykktu tillögu um að sveitarfélögin sameinuðust. Meirihluti íbúa í Skútustaðahreppi, Aðaldælahreppi, Tjörneshreppi og Kelduneshreppi felldu tillöguna. Þeir þurfa hins vegar að kjósa aftur innan sex vikna þar sem meirihluti íbúa í sveitarfélögunum samþykktu.


Í Öxarfjarðarhreppi sögðu 81 já og 75 nei. Í Raufarhafnarhreppi sögðu 55 já en 43 nei. Í Húsavíkurbæ sögðu 348 já en 117 nei. Í Skútustaðahreppi sögðu 75 já en 141 nei. Í Aðaldælahreppi sögðu 36 já en 113 nei. Í Tjörneshreppi sögðu 17 já en 20 nei. Í Kelduneshreppi sögðu 28 já en 29 nei.

Í heildina samþykktu 640 íbúar tillöguna en 538 höfnuðu henni. Félagsmálaráðuneytið segir, að þar sem að minnsta kosti tvö sveitarfélög hafi samþykkt tillöguna og meiri hluti þeirra, sem afstöðu tóku í atkvæðagreiðslunni, lýsti sig fylgjandi sameiningartillögunni eigi íbúar þeirra sveitarfélaga, sem felldu tillöguna, að greiða því aftur atkvæði um sömu tillögu innan sex vikna, þ.e. eigi síðar en 15. nóvember.

Eins og sjá má hefur verið mjótt á munum víða og minnstu munar í Kelduneshreppi og Tjörneshreppi, þar sem sameiningu var hafnað í þessari lotu.
Eins og íbúar í Öxarfjarðarhreppi vita þá er mikið samstarf milli Öxarfjarðarhrepps og Kelduneshrepps t.d. í lang stærsta málaflokknum sem er fræðslumálin. Því verður spennandi að sjá hver úrslitin verða í næstu lotu kosninga um sameiningu 7 sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum.
Til baka
© 2000 - 2002 Öxarfjarðarhreppur, Bakkagötu 10, 670 Kópasker
Sími: 465-2188, Fax: 465-2380 oxarfjordur@simnet.is