|
Félagsstarf eldri borgara á vegum Öxarfjarðarhrepps og Markar veturinn 2005/2006
Ágætu sveitungar fæddir 1939 og fyrr, og makar þeirra!
Vetrarstarf eldri borgara er í þann mund að hefjast og verður samkvæmt því sem hér segir:
Sundleikfimi: Mánudaga og fimmtudaga næstu 3 vikur (þ.e. 12., 15., 19., 22., 26. og 29. september) verður boðið upp á sundleikfimi í sundlauginni í Lundi. Umsjón verður í höndum Jóhanns R. Pálssonar leikfimikennara. Tímarnir hefjast kl. 17:00 og standa til 18:00.
Félagsstarf eldri borgara í Mörk veturinn 2005/2006 hefst miðvikudaginn 14. september. Boðið verður upp á leikfimi frá kl. 11:30-12:00, handavinnu eftir hádegi og loks miðdegiskaffi.
Föstudaginn 30. september hefst félagsstarfið í íþróttahúsinu og verður alla föstudaga frá kl. 10:00 - 12:00 í umsjón Hólmfríðar Halldórsdóttur. Boðið er upp á íþróttaiðkun svo sem boccia, pútt (minigolf), billiard, pílukast og sitthvað fleira í íþróttahúsinu á Kópaskeri. Auk þess mun Sigríður Kjartansdóttir sjá um leikfimi frá kl. 11:15-11:45 í íþróttahúsinu.
Eftir hádegi á föstudögum verður tekið í spil, í Mörk, og miðdegiskaffi þar á eftir.
Vakin er athygli á því að alla virka daga er hægt að fá mat í hádeginu í Mörk og er fólk vinsamlegast beðið um að tilkynna þátttöku með dags fyrirvara.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA!!!
Allir hjartanlega velkomnir!
Kópaskeri 7. september 2005 Starfsfólk Markar og Öxarfjarðarhrepps
|