Staðardagskrá 21 (Local Agenda 21) er heildaráætlun sveitarfélaga í heiminum um hvernig þau geti stuðlað að sjálfbærri þróun í sinni heimabyggð. Með öðrum orðum má segja að Staðardagskrá 21 sé ætlað að útbúa tossalista yfir verkefni í sveitarfélaginu sem stuðli að sjálfbærri þróun.
Hugmyndafræðin um sjálfbæra þróun er í sjálfu sér einföld þrátt fyrir óendanlega margar og flóknar skilgreiningar á hugtakinu. Sjálfbær þróun gengur einfaldlega út á að ganga ekki á höfuðstólinn, njóta vaxtanna, borða ekki útsæðið, viðhalda hringrás lífsins. Segja má að sjálfbær þróun sé nokkurs konar samþætting hagvaxtar, félagslegra þátta og umhverfisverndar.