Öxarfjörður
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Myndir
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Saga
Umhverfi
Áhugavert
Atvinnumál
Þjónusta
Staðardagskrá 21
Stjórnsýsla
Skrifstofur
Starfsfólk
Fundargerðir
Nefndir
Sveitarstjórn

Áhugavert
Margt áhugaverðra staða er að finna í Öxarfirði. Strandlengjan er aðgengileg og einkennist af miklum sandströndum, sérstaklega fyrir botni flóans. Kópasker, eini þéttbýlisstaðurinn í Öxarfjarðarhreppi, stendur við miðja austurströnd flóans. Þorpið er lítið sjávarþorp með um 140 íbúum. Kópasker varð löggildur verslunarstaður um 1880 en byggð hófst að myndast þar upp úr 1910. Kópasker varð illa úti í jarðskjálftanum í janúar 1976, á tímum Kröfluelda, og mörg hús skemmdust í hörðustu skjálftunum. Merkar jarðfræðiminjar, þar sem eru setlög með steingerfingum, er að finna í Röndinni sem er sjávarkamburinn þar sem mörg atvinnufyrirtæki á Kópaskeri standa. Á Melrakkasléttu sem að mestu telst til Öxarfjarðarhrepps er margt að sjá og ber helst að telja strendur sem eru bæði fjölbreyttar og fallegar. Á Sléttu er allnokkuð um eyðibýli þar sem ekki eru margar jarðir þar enn í byggð. Mikill rekaviður hefur jafnan verið á Sléttu sem enn er nýttur að einhverju leiti. Fuglalíf er þar fjölskrúðugt og náttúran öll á hin fjölskrúðugasta, ekki síst yfir hásumarið þegar sólin sest ekki dögum saman á þessum nyrsta hluta landsins.

Dettifoss
Jökulsárgljúfur
Vesturdalur
© 2000 - 2002 Öxarfjarðarhreppur, Bakkagötu 10, 670 Kópasker
Sími: 465-2188, Fax: 465-2380 oxarfjordur@simnet.is