Öxarfjörður
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Myndir
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Saga
Umhverfi
Áhugavert
Atvinnumál
Þjónusta
Staðardagskrá 21
Stjórnsýsla
Skrifstofur
Starfsfólk
Fundargerðir
Nefndir
Sveitarstjórn

Atvinnumál
Í Öxarfjarðarhreppi er nær eingöngu stundaður sauðfjárbúskapur, Í Norður Þingeyjarsýslu hefur verið staðið vel að verki í sauðfjárræktinni s.l. 50 ár og tekist hefur að halda svæðinu ósýktu t.d. af riðuveiki sem verið hefur landlæg víða. Búnaðarsamband Norður-Þingeyinga sem starfað hefur í þrjá aldarfjórðunga af mikilli framsýni og fagmennsku á mikinn hlut af því hvernig til hefur tekist í jarðrækt og búfjárrækt.

Góður árangur hefur náðst í vinnslu afurða og gengur vel hjá hlutafélaginu Fjallalambi hf. sem er sláturhús og kjötvinnsla, og er í eigu bænda í Norður Þingeyjarsýslu, sveitarfélaga og fleiri, aðallega austan Jökulsár.

Hrossarækt hefur verið stunduð um árabil með allgóðum árangri, fjárhundarækt og þjálfun um nokkurt skeið.

Fyrir tveimur árum var hafin lífræn ræktun á gulrótum, spergilkáli o. fl. sem lofar mjög góðu, bæði í magni og gæðum.

Fiskeldi í Öxarfirði er nú í miklum blóma eftir margra ára tilraunir. Silfurstjarnan hf. var stofnuð 1988 og er ein af stæstu strandeldisstöðvum landsins. Framleiðslugeta stöðvarinnar er um 2000 tonn af eldisfiski. Starfsmannafjöldi er 22. Silfurstjarnan er eina fiskeldisstöðin á Íslandi sem notar jarðhita að einhverju marki. Fyrirtækið framleiðir lax, bleikju, sandhverfu og lúðu. Stærsti hluthafi er Samherji hf.

Rækjuveiðar hafa verið stundaðar frá árinu 1975. Veiði hefur verið mjög mikil, eða allt að 1.750 tonnum á vetri þegar mest hefur veiðst, en farið niður í ekki neitt þegar illa hefur árað. Rækjan hefur jafnan verið stór og góð þegar veiði hefur gengið vel og hefur hráefnið hentað vel til vinnslu. Byggð var rækjuvinnsla á Kópaskeri skömmu eftir að veiðar hófust og var rækja unnin á staðnum nær óslitið til ársins 2002. Nálægðin við miðin og ágætt samstarf við útgerðir sem hafa stundað veiðarnar, hefur gert vinnslunni kleyft að vinna úrvalsafurðir úr rækjunni. Jafnframt hefur vinnsla á rækju verið snar þáttur í atvinnulífi staðarins. Frá 2002 hefur rækjustofninn í Öxarfirði verið það lítill að Hafrannsóknastofnun hefur ekki lagt til neinar veiðar, og sumarið 2003 var rækjuverksmiðjunni á Kópaskeri (Gefla hf.) lokað. Helstu ástæður fyrir minnkun rækjustofnsins er hlýr sjór og aukin fiskgengd, þá sér í lagi þorskur.

Fiskveiðar og útgerð var allnokkur á árum áður og var stærsta skipið Árni á Bakka 250 tonna togskip, sem gert var út frá Kópskeri um skeið. Nú eru gerðar út þar örfáar trillur.

Í janúar 2005 tók til starfa fiskmóttaka Öxarnúps ehf. í húsnæði rækjuverksmiðjunnar. Þar geta bátar fengið löndunarþjónustu, ís ofl. Stefnt er að fiskvinnslu hjá Öxarnúpi en til að byrja með er fiskur seldur á markað og erlendis.

1. fundargerð atvinnumálanefndar frá 9. desember 2002
2. fundargerð atvinnumálanefndar frá 21. júlí 2003
Fundargerð 3. fundar atvinnumálanefndar
© 2000 - 2002 Öxarfjarðarhreppur, Bakkagötu 10, 670 Kópasker
Sími: 465-2188, Fax: 465-2380 oxarfjordur@simnet.is