Þéttbýlið Kópasker er aðalþjónustkjarni héraðsins. Íbúar þar eru um 140. Þar er meðal annars Landsbankinn, Heilsugæslustöð, Íslandspóstur, Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis, Bifreiða og vélaverkstæðið Röndin, Rarik og Kópaskershöfn.
Á Kópaskeri er Farfuglaheimili með gistingu og veitingasölu, Verslunin Bakki sem rekur einnig besínstöð Esso, Videoleigan Kópaskeri sem er söluturn og grill. Þá er einnig ágætt bóka- og byggðasafn að Snartarstöðum og tjaldstæði við Kópasker.
|