Öxarfjörður
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Myndir
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Saga
Umhverfi
Áhugavert
Atvinnumál
Þjónusta
Staðardagskrá 21
Stjórnsýsla
Skrifstofur
Starfsfólk
Fundargerðir
Nefndir
Sveitarstjórn

Saga
Torf-Einarr hét maður, jarl er gat dóttur við ambátt í æsku, sú hét Þórdís, hana ól upp Rögnvaldur jarl og gifti hana Þorgeiri klaufa. Þeirra son var Einarr; hann fór til Orkneyja að finna frændur sína; en þeir vildu eigi taka við frændsemi hans Þá kaupir Einarr skip með bræðrum tveim, Vestmanni og Vémundi; en þeir fóru til Íslands rétt á eftir, og sigldu fyrir norðan landið og vestur um Sléttu í fjörðinn. Þeir settu öxi í Reistargnúp (sem er sennilega Snartarstaðanúpur fremur en Öxarnúpur) og kölluðu því Öxarfjörð; þeir settu örn upp fyrir vestan og kölluðu þar Arnarþúfu; en í þriðja stað settu þeir kross; þar nefndu þeir Krossás. Svo helguðu þeir sér allan Öxarfjörð. (Allt land fyrir austan Jökulsá þá höfðu þeir numið.) Börn Einars voru þau Eyjólfur, er Galti Gírsson vóg, og Ljót, móðir Hróa hins skarpa, er hefndi Eyjólfs og vóg Galta. (Hrói er í Njálu talinn fyrir Öxfirðingum, og í Reykdælu er getið Hróa í Klifshaga. Hrói hinn skarpi kynni að hafa verið annarhvor þessara manna) (eða báðir?) Synir Glíru-Halla, Brandur og Bergur, voru dóttursynir Ljótar; þeir féllu í Böðvarsdal. (Taldir hafa verið í liði Bjarna Brodd-Helgasonar þá er hann barðist við Þorkel Geitisson.)Reistur son Bjarneyja-Ketils og Hildar, systur Ketils þistils, faðir Arnsteins goða, Reistur nam land á milli Reistargnúps og Rauða-gnúps og bjó í Leirhöfn. Arngeirr hét maður, er nam Sléttu alla milli Hávararlóns og Svein-ungsvíkur, börn hans voru þau Þorgils og Oddur og Þuríður, er Steinólfur í Þjórárdal átti. Oddur var eldsætur í æsku og seinlegur og var kallaður kolbítur. Þeir Arngeirr og Þorgils gengu að heiman í fjúki að leita fjár og komu eigi heim. En sem seinkaði heimkomu þeirra, þá fór Oddur að leita þeirra og fann þá báða örenda, og hafði hvítabjörn drepið þá og lá þá á pasti, (át þá) og saug ú þeim blóðið er hann kom að. Oddur veitti þá skaða birninum og hafði heim, og segja menn, að hann æti allan, og kallaðist þá hefna föður síns, er hann drap björninn, en þá bróður síns, er hann át hann. Þótti hann þaðan frá illur og æfur og ódæll við að eiga; hann varð hamrammur (hamremmi kom einkum fram á nóttum) svo mjög að hann gekk heiman úr Hraunhöfn um kveldið, en kom um morguninn eftir í Þjórsárdal til liðs við systur sína, er Þjórsdælir vildu berja grjóti í hel fyrir fjölkynngi og tröllskap.

(Landnámabók 284-287)


© 2000 - 2002 Öxarfjarðarhreppur, Bakkagötu 10, 670 Kópasker
Sími: 465-2188, Fax: 465-2380 oxarfjordur@simnet.is